Thursday, June 25, 2009

Takk fyrir

Mig langar að nota þetta þetta tækifæri og þakka Durex og RÚV hjartanlega fyrir samtal sem ég þurfti að eiga við 12 ára dóttur mína í gærkvöldi þar sem ég þurfti að útskýra fyrir henni hvað unaðskrem fyrir konur væri. Ekki svo að skilja að ég hafi roðnað og blánað yfir þessu, við mæðgurnar eigum ákaflega gott samband og getum svo sem talað um allt en mér fannst þetta bara ekki alveg tímabært. Hvers snilldar hugmynd var það að sýna þessar auglýsingar á milli 9 og 10 á kvöldin.

1 comment:

  1. Ég bíð eftir því að þurfa að útskýra þetta fyrir 4 ára dóttur minni sem er þessa dagana mjög áhugasöm um það hvernig börnin verða til og hvort fólk eigi eða eigi ekki að vera að kyssast í sjónvarpinu. ;)

    ReplyDelete